Nú get ég ekki lengur orða bundist

Ég ákvað að segja skilið við þetta blessaða blogg, þar sem þetta er tímaþjófur og í raun vettvangur fyrir almennt tuð og leiðindi.

En ég verð að tjá mig um ummæli feita barþjónsins sem þjálfar nú dipperana.

Hann er fallinn í nákvæmlega sama pitt og Avram Grant fyrrum þjálfari Chelsea: með United á heilanum.

Það er kannski ekki nema von.

Svona pælingar um "að ef þetta lið vinnur þarna" og "ef þessi leikur fer svona" er lýsandi fyrir menn sem hafa enga stjórn á atburðum og þurfa að hengja sig á eitthvað annað en eigin styrk og æru. Þjálfarar beita vissulega herkænsku þar sem reynir á andlegt þrek manna og pólitískt vit, en Benitez kann bara ekki að spila þann leik.

"Staðreyndasúpa" hans sannar það fullkomlega.

Liverpool er líklega sá klúbbur sem fæstir vilja mæta núna. Árangur og form þeirra er staðfesting á því.

En að halda því fram að United séu hræddir við Liverpool er til marks um algert þekkingarleysi staðreyndameistarans á sögu þessara klúbba. United lifir fyrir að spila við Liverpool, og öfugt.

Benitez. Lokaðu nú á þér þverrifunni og hafðu hugfast að síðasta "bomba" sem þú droppaðir á United kostaði þig 1. sætið til okkar.

Haltu þig við það sem þú kant best, hvað sem það nú er....

 

 


mbl.is Benítez: Ferguson er hræddur við okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Höfundur

Mancunian
Mancunian
Our goal is, through innovation, commitment and evolution, to protect and develop the brand by sustaining the playing success on the field and growing the business to enhance the financial strength of the Group
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband