19.11.2009 | 08:45
Hneyksli
Þetta blogg er tileinkað enska boltanum en hér verð ég að leggja orð í belg.
Það sem Henry gerði hér, var að senda Frakkland áfram í keppninni á fölskum forsendum. Þetta er eins og að skreppa í bikaraverslun og kaupa sér bikar, láta grafa í hann "leikmaður mótsins" og ljúga að öllum að þú hafir eitt sinn verið stjarna í fótbolta.
Frakkar ættu að skammast sín fyrir þetta atvik og fordæma Henry. Þessi annars siðprúði piltur er þjóð sinni til skammar og hefur í raun ómerkt allan árangur sem Frakkar kunna að ná í heimsmeistarakeppninni sem nálgast óðum.
Platini forseti UEFA sem er samlandi Henry hefur einmitt verið tíðrætt um heiðarleika og siðferði í knattspyrnu. Það verður gaman að heyra hans álit á aðferð Frakka í að komast á stórmót. Með því að svindla, og svindla viljandi.
![]() |
Henry: Ég notaði höndina viljandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar